totisif

Brink

30.07.2007 01:52:08 / totisif

new york steak

Herdís og Úlf áttu árs brúðkaupsafmæli í gær og fá hamingukveðjur frá totasif. Þau fögnuðu þessu í sitt hvoru heimshorninu; Úlf e-s staðar á flakki í Evrópu og við Herdís fengum okkur göngutúr um lower east side, borðuðum thaifood þar, desert í Little Italy, og fengum ofskammt af fólksmergð í Chinatown. Þessi borg er náttúrulega bara ótrúleg með öll sín ólíku hverfi og fólk á svona litlu svæði. Það er allavega hægt að upplifa mikið bara á manhattan. jæja, við löbbuðum af okkur lappirnar og enduðum í bíó á Knocked Up...popp í kvöldmatinn :) Það var steik úti svo að loftkælt bíóið var kærkomið. Fórum svo út í dinner í kvöld og ég fékk mér steik og rauðvín...nú á ég orku fyrir vikuna framundan. ég er búin að sjá verk eftir tvær íslenskar listakonur; Hrafnhildi Arnardóttur aka. Shoplifter og Þórdísi Aðalsteinsdóttur. http://unit.bjork.com/specials/albums/medulla/ Shoplifter gerir hárskúlptúra, eins og hún gerði á Medúllu Bjarkar og Þórdís er t.d. hér... http://www.thordisnyc.blogspot.com/ ... Gaman að rekast á þetta. Hrafnhildur Ólafsdóttir var að giftast Orra sínum í dag...ótrúlega leiðinlegt að missa af örugglega mjög skemmtilegu brúðkaupi aber..til hamingju! Þá er þetta gott.

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 01:54:56 / totisif

nýjar betri myndir

já, kominn nýr linkur með nýjum myndum, flestar héðan úr jórvíkinni... nokkrar af stelpunum í pönnsuboði í ömmuhúsi ;) svo erum við þarna úti að borða á TAO - ógeðslega gaman - moma-myndir, SATC túr og fólk svona almennt í góðu skapi í útlöndum :) enjoy

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 17:51:48 / totisif

TELMA

litla systir á afmæli í dag....orðin twentythree! Hún fær hamingjuóskir og ástarkossa. hvatli hana langi í afmælisgjöf...

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 18:19:42 / totisif

brooklyn og manhattan

já, skelltum okkur til Brooklyn um daginn; reyndar bara í eitt lítið hverfi þar, og það var ósköp huggulegt, lág hús, engin umferðarljós, kósý kaffihús og skemmtilegar búðir. Nokkrar stórar spútnik búðir sem er gaman að gramsa í, bókabúðir og tónlistarbúðir. keypti joni mitchell og miles davis. nýr prince diskur kemur síðan út í ágúst, hlakka til að fá mér hann. þarna var líka fínasta newborn baby húsgagnabúð; herdís komst í feitt þar...mér finnst nú ekkert leiðinlegast í heimi að skoða þetta dót, margar mjög skemmtilegar græjur, mátaði svona babybjörn og hann passaði bara vel...veit allavega hvað mig langar í þegar kemur að þessu e-n tíma. fínasta æfing að búa með óléttri konu. svo sáum við Manhattan í gærkvöldi. mjög skemmtilegt bíóhús, film forum, svolítið eins og Tjarnarbíó, aðeins stærra. virkilega góð mynd. allen upp á sitt besta. Horfðum á Scoop um daginn, hún var allt í lagi, ágæt bara. Karlinn er bara að verða gamall. ojæja. kvefið fór ekki lengra en í sófann þarna um daginn, sem betur fer. svona hálftíma pest. eins gott að passa sig á kuldanum í búðunum og á veitingastöðunum. sárið greri vel, næstum allt komið. Gestur Ingi, elsku litli bróðir fær batnaðarkveðjur...e-r dirfðist að sparka með takkaskó í augað á honum, ekki gott. fótbolti er stórhættuleg íþrótt. sem hann er samt að fara að spila allan næsta vetur í Árósum...kannski hann fái sér svona hlífðargleraugu fyrir næsta leik, ahah, málin með húsnæði í Bologna eru að skýrast, vonandi verður þetta allt saman komið á hreint næst. Telma litla hélt upp á afmælið sitt í gær...til lukku með það! Vonandi tókstu systur þína EKKI til fyrirmyndar...og skemmtir þér vel :) lvoelove, Þórey

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 01:23:59 / totisif

uppi i sofa

er hálfgerð tuska akkúrat núna. tókst að stinga hnífi í lófann á mér um daginn ;) frekar óskemmtilegt. Herdís á frekar beitta hnífa hérna og ég missti einn og hef örugglega í sakleysi mínu reynt að grípa hann. hann lenti sem sagt beint á höndina og stakkst aðeins inn. uch. en sárið grær ágætlega, og ég er farin að geta notað puttana mína. svo var bara að hellast yfir mig e-ð kvef og slappelsi. herdís sendi mig í sófann með teppi og te. já já, hún verður góð mamma ;) vorum að rugla húsgögnunum í herberginu þeirra, gera pláss fyrir barnarúmið og svona. ég er búin að kíkja í nokkur gallerí og það er ýmislegt skemmtilegt í gangi. þarf svo að kíkja á nokkrar sýningar í söfnunum. Bíó er líka vinsælt, í gær fórum við á Gretu Garbo mynd, Ninotchka, og hún var skemmtileg. Garbo hlær í þessari. á morgun er To Sir, With Love í Bryant Park. man að ég sá hana e-n tíma fyrir löngu í sjónvarpinu á einhverju föstudagsbíóþemakvöldi. auðvitað klassískt bíó með sidney poitier og lulu sem syngur þetta æðislega lag. kannski maður skelli sér. Manhattan eftir Woody Allen er síðan í sýningu í einu bíóinu. það væri gaman að sjá hana í bíó. jájá, margt hægt að gera. Katrín Anna Jónasdóttir, 3ja ára dama, fær afmæliskveðju!! og stórt knús sem kemst vonandi til skila. og Erla og Jónas hamingjuóskir með brúðkaupsafmælið. 2 ár, vel gert. Úlf Viðari Níelssyni er síðan óskað til hamingju með FESE ritgerðarverðlaunin sín. Hann leggur sitt af mörkum í hagfræðiheiminum. Aðrir fá kveðju...Þórey

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 22:20:17 / totisif

eitt stutt og laggott

lífið er ágætt hér í jórvík.  Herdís er dugleg að mæta í skólann og læra/vinna/skemmta sér.  Ég reyni oftast að byrja daginn á léttu skokki í riverside garðinum sem er hér rétt fyrir neðan.  stundum, eins og í dag, er samt of heitt fyrir eitthvað hlaup; súrefnisupptakan er engin og þá hægir á manni en það er líka ágætt að taka gott powerwalk.  gera síðan nokkrar kúlurassaæfingar og teygja á.  þá er gott að fá sér hádegismat, og svo er bara dagurinn nokkuð góður.  ég fékk afnot af tölvunni hennar herdísar í dag og eftir tvo tíma var ég komin með gífurlegan hausverk og augnaverk og bara varð að leggja mig.  já, það er hægt að verða fráhverfur þessu..sem mér finnst bara gott.  eins og ég segi er smá hitabylgja hjá okkur þessa dagana og verður líklegast bara svona áfram.  Þá er gott að fara í Central Park og liggja þar með bók og leyfa húðinni að fá lit.  er að verða búin með Leyndarmál býflugnanna sem Elsa gaf mér um daginn og svo tekur við spennuskáldsaga á ítölsku.  verð örugglega ekki jafn fljót með hana :)

Í gær fórum við á útibíó í Bryant Park sem er í miðri borg.  Slatti af fólki saman kominn á flötnni með pikknikk og næsheit og svo byrjaði Wait Until Dark með Audrey Hepburn...fínasta mynd, gömul en ekki of gömul og fólk hló og klappaði saman yfir henni.  Ægilega skemmtilegt.

Í kvöld er okkur boðið í mat hjá pari hér í blokkinni; þetta er hálfgerð íslendingablokk held ég.

Ég kann ekki fleiri fréttir í bili, það er bara kominn 10. júlí áður en maður veit af og herdís komin 7 mánuði á leið.  ég er bara komin 4.  miðað við bumbuna sem ég á ;)  Allora, ci vediamo.  Þórey 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 21:02:41 / totisif

fréttir

Hallo. best að tala smá frá USA. Búin að sjá heilmikið af því. Keyrðum til Maryland um daginn og heimsóttum systur pabba sem á heima í Rockville...það er soldið kúl bæjarnafn. Svo sóttum við forsetann heim, skoðuðum höfuðborgina sem mig langar að skoða miklu meira seinna. svo er ég bara nokkuð góð í að leika guide hér í NY...búin að fara heilmikið með foreldrana, og ekki bara í búðirnar. mamma heimtaði síðan um daginn að fara á söngleik og við sáum Mary Poppins á Broadway. Rosa flott show og ægilega gaman :) Herdís sneri aftur heim til sín í gær og bumban er núna að leggja sig eftir góða bæjarferð áðan. ofsa gott að fá hana heim... ætluðum í fótsnyrtingu en það var lokað vegna sunnudags, hér er maður nebbla bara í opnum sandölum og eins gott að vera með fínar tær... Hitastigið hefur verið hátt, stundum of hátt en þessa dagana er bara um 25 stiga hiti og svalt. þjóðhátíðardagurinn ætti að verða góður þó það sé hætta á stormi. held það verði mikið húllumhæ í bænum, og bara út um allt land. Mamma og pabbi eru í road trip en koma aftur á þriðjudaginn og pabbi ætlar að fagna þjóðhátíðinni sinni hérna með okkur. Hann var btw að finna frænda sinn í Scranton; fletti upp á Brink í símaskránni og fann einn slíkan sem var síðan bara vel skyldur afa og góður vinur hans. Ægilega sniðugt :) Jæja. Heyrumst seinna. Bið að helsa. Ciao!

» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Myndir