totisif

Brink

13.02.2007 22:33:18 / totisif

i'm not a girl, not yet a woman..

Já, mig langar að syngja með henni Britney...er maður nokkuð orðinn of gamall til að syngja þetta lag?  maður er nú kominn á soldið háan aldur, ég tala nú ekki um eftir bara fáeina mánuði.  maður er nú kona.  jæja, skiptir ekki máli, það er komið nýtt lag! hvað finnst ykkur um sálina og gospel...

ég gerði lítið annað en að vinna heimapróf, nokkuð sveitt, um helgina.  það tókst að lokum að skilja hvert maðurinn var að fara með spurningunum en úff, tók svolítið á.  Skellti mér með foreldrum og ömmu í Aratungu á tónleikana hans Egils og það var rosalega gaman; hann og Diddú voru sérstaklega í essinu sínu.  Ein glæsilegasta afmælisveisla sem mér hefur verið boðið í.  Ég skal gera þetta þegar ég verð þrítug...bjóða öllum í heiminum á tónleika með mér!

á morgun er mér boðið í handsnyrtingu; ég ætla að lána katrínu magneu hendur mínar í prófinu hennar en hún er að klára snyrtiskólann núna.  ekki amalegt.

jæja, þetta verður ekki lengra í þetta skiptið, hann Jude kærastinn minn er í heimsókn og ég þarf að sinna gæjanum aðeins...


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 20:20:49 / totisif

Þetta er Ónefnd færsla

hæ sæta fólk. 

þetta er helst: æ, það er bara eiginlega ekki neitt.  ég er að spara mig í viðburðum fyrir svíþjóðarferð og tek á því um helgar í lærdómi, sem er auðvitað æðislegur viðburður út af fyrir sig.  svo gengur lífið svolítið mikið út á mat þessa dagana, eins og það gerir auðvitað alltaf, en mikið tekur það á að borða svona reglulega eins og reglur segja til um.  það er dálítill hausverkur að vera alltaf að pæla í þessu en maður kemst ekki hjá því þar sem að maginn er farinn að kalla á mat eftir 2-2 og hálfan tíma...botninn gjörsamlega dottinn úr honum.  Það er vinna að vera í svona átaki en býsna skemmtilegt..mér finnst ég bara pínu geðveik að vera með matinn svona mikið á heilanum. 

og kaffi.  ég er ekki frá því að það sé ávanabindandi, haaa...??  kaffisjúk.  ég er nú samt ekkert að hvolfa ofaní mig mörgum bollum á dag, þremur í mesta lagi, og ég er svona gæðakaffisjúk, vel aðeins það besta.  sem þýðir kaffitár.  meðmæling dagsins er einmitt súkkulaði- og möndlukaffið frá þeim (fyrir sanna sælkera, eins og mig), smakkaði líka heimsálfukaffið í dag og ég sver það að ég heimsótti allar heimsálfurnar 30 í einu í þeim bolla.

 hmm, kannski kann ég e-ð slúður...svo ég tali nú um aðra (kannski ekki eins skemmtilega) en mig.  vala er flutt á lokastíg (með vídjótækið mitt ennþá í gíslingu), elsa keypti sér kjól fyrir konunglegu óperuna í stokkhólmi og tótla bauð mér á deit á morgun á óliver. Jei! 

Var að hlaupa inn í stofu til að heyra í honum Agli sæta tenór (http://www.egill.info/)að syngja Hamraborgina í Kastljósi.  Hann heldur upp á afmælið sitt í Árborg á laugardagskvöldið með stórtónleikum, ég held ég mæli bara með því líka,frábær söngvari þar á ferð.  mig langar að kíkja ef ég verð dugleg með heimaprófið sem á að skila á mánudaginn.  ég ætlað skemmta mér yfir því um helgina, vonandi hafið þið það álíka gaman!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 18:47:10 / totisif

aumingja elskurnar mínar.

þið hafið ábyggilega miklar áhyggjur af mér...það heyrist ekkert í mér hér og ég veit að þetta er ferlega illa gert.  stundum blossar bara upp þetta tölvuofnæmi hjá mér og ég get ekki hugsað mér að setjast niður fyrir framan skjá og pikka bókstafi inn á lyklaborð eins og einhver bjáni.  þannig er nú það.

fyrir rétt rúmri viku flaug ég til akureyrar eftir erfiðan vinnudag og lenti í prýðilegum notalegheitum hjá dögg vinkonu.  við nýttum nú tímann ágætlega í að læra smá og borða smá og knúsa svartan kött þess á milli.  skelltum okkur síðan í leikhús bæjarins og sáum Svartan kött; prýðileg skemmtun með miklu ofbeldi og blóði, svona farsa-splatter og ég hafði mikla ánægju af að sjá limlest lík beint fyrir framan mig á sviðinu.  hvað er að mér eiginlega...  Jæja, áttum svo bara rólegt djamm, smá bjór og buzz á grænhólaeyju, og kaffi akureyri stóð fyrir sínu sem óþolandi skemmtistaður.  Dögg kom ekki á óvart með kökubakstri og súkkulaðiföndri; hún er með eindæmum hæfileikarík stelpan.

Nú er komin önnur helgi, öllu rólegri þar sem ég sit ein heima og slappa af og les og læri svona af og til.  Vikan einkenndist af handboltarússíbana.  ég er búin að fá nokkur hjartaáföll og upplifa ótal tilfinningar við að fylgjast með þessum leikjum og var niðurbrotin manneskja á þriðjudaginn og langt fram á miðvikudag.  En svona er þessi handbolti og ég dáist að þessum strákum, þeir börðust hetjulega.  Ég mæli með því að lesa blogg eftir þá nokkra á ibliduogstridu.is, þeir eru fyndnir.

Að lokum vil ég óska völu til hamingju með flutninginn á lokastíg, afar falleg íbúð með góðu plássi fyrir tvö pör, og svo láta vita að ég mun heimsækja elsu alla leið til svíþjóðar eftir aðeins tuttugu daga. eins gott að fara að rifja upp sænskuna.  eða var það danska sem ég lærði...


» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
18. mars 2010
Myndir