totisif

Brink

26.06.2009 13:50:35 / totisif

Við Aron Daði

http://myndir.nino.is/2/B/mynd_42fd82d5.jpg

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2009 12:56:52 / totisif

Aron Daði :)

http://myndir.nino.is/D/9/mynd_2b47ff60.jpg

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2009 15:21:09 / totisif

Litli, langi og fallegi frændi

http://www.nino.is/myndir/0/8/mynd_d4f924b8.jpg

Sveinninn mætti í heiminn fimmtudagsnóttina 2. apríl, svona líka fagur og flottur.
Hann breyttist um leið í þetta jarðarber sem ég var búin að prjóna handa honum - sætur prins með kórónu :)
Telma og Svavar fá hamingjuóskir með drenginn - duglega fólk!

Lífið er alveg ágætt :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2009 22:07:28 / totisif

skyndiblogg - engin ábyrgð tekin

allt í einu langar mig að blogga - kannski af því að ég er búin að vera að skrifa ritgerð í allt kvöld og bara verð að fá að skrifa e-ð annað.  mundi ekki lykilorðið og það tók nokkrar tilraunir að komast inn á vefstjórnina -  verð að passa mig að missa ekki alveg stjórnina.

hef samt frá eiginlega engu að segja - þeir sem þekkja til vita allt um mig...og þó. 
ég er búin að vera að kíkja á nokkrar íbúðir; mis-litlar og góðar og þær eru staðsettar úti um alla borg og jafnvel í kópavogi en mér finnst ég vera góð hvar sem er með hjálp strætó :)  þvílík bjartsýni.  á samt erfitt með að gera upp hug minn og langar að skoða aaaðeins meira.  jájá, ég á eftir að finna mér holu til að skríða í á kvöldin og með kaffivélinni sem erla ætlar að gefa mér þá verður þetta kósý hvernig sem fer.  verð að muna að sækja blessaða vélina...

það er búið að vera fínt að vakna kl.7 (snúsa svo í hálftíma) og mæta í vinnuna á morgnana, skemmta sér þar í átta tíma og reyna síðan að gera e-ð uppbyggilegt eins og hreyfingu, syngja eða læra - það verður fróðlegt að sjá hvernig það gengur eftir að starfstímanum lýkur í apríl, þ.e. að vakna snemma og vinna svona streit í átta tíma.  er maður nógu agaður??  það verður bara að ganga til að a.m.k. önnur ritgerðin verði tilbúin á réttum tíma.  men!
sumarvinnutörnin verður síðan á sama stað á krókhálsinum - ægilega fínt og þægilegt.

á morgun á svo litla systir að unga út samkvæmt mínum spám...vonandi hennar vegna - allavega á barnið að vera tilbúið í ofninum :)  mikið hlakka ég til að hitta litla sykurmolann sem ég ætla að breyta í jarðarber um leið og hann kemur út!  þetta verður hinn skemmtilegasti tími :-)

seinustu helgi pantaði ég mér far til Helsinki - það verður afmælisferð til völu og alexi :)  hlakka til að sjá hjónaleysin þar, fara með þeim á pöbbana og söfnin og í guuufu...aaahh.

værsogod!

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.01.2009 20:53:10 / totisif

Gleðilegt ár

http://photos-h.ak.fbcdn.net/photos-ak-snc1/v1965/121/62/705152210/n705152210_1130327_3545.jpg

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 00:41:33 / totisif

sisters

http://photos-d.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v355/121/62/705152210/n705152210_858851_5820.jpg

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 21:03:33 / totisif

Þórey og Daníel Tryggvi

http://photos-e.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v332/209/28/639696316/n639696316_970468_5135.jpg

Má til með að sýna hér skemmtilega mynd sem hún Vala smellti af mér og Danna (eign Siggu og Snorra já) í sumar - sjáið þið dýrðina!  Hann er að safna bollukinnum, ekki ósvipuðum mínum, og fínustu undirhöku og er sjö mánaða gamall strákur :)  Ekki hægt annað en að brosa.

Ég er næstum því eiginlega komin af stutta stutta hárinu og er nú að spá hvort að sítt sítt sé málið...klipping fer væntanlega ekki fram fyrr en nokkrum dögum fyrir jól svo allt er mögulegt í stöðunni.  Leggst undir feld og hugsa ekki um annað fram að jólum!

Annars er allt í góðu bara; fer samviskusamlega í skólann og læri heima þess á milli, stunda kór og hreyfingu og starfræki barnapíuþjónustu fyrir þá allra nánustu.  Nóg að gera líka í skemmtunum þó það sé frí sem betur fer þessa helgina, fæ smá tíma til að losna við skít í hálsi og smá slappelsi, þetta sem vill alltaf koma með haustinu.

smack!

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 16:11:36 / totisif

mjög svöl kona

http://www.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?NewTbl=1&Avis=XZ&Dato=20080909&Kategori=LIFID01&Lopenr=514194698&Ref=PH&Item=12&Maxw=450&Maxh=450&NoBorder=1

Það er spurning um að verða aftur svona ef ég ákveð að klippa mig e-n tíma aftur - bara að verða ár síðan síðast... - svona fyrst þetta er í tísku.  Kannski þegar ég er orðin eins mjó og Victoría vinkona mín, sem verður nú bara á næstunni!  Hún er allavega töff.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 21:29:12 / totisif

Gleði á Grundarhóli - Þingeyri, Dýrafirði

http://im1.shutterfly.com/procgtaserv/47b8d938b3127cce985498f46d2000000046100AcNnLZizZOGOA

Neðsta röð: Sólborg Unnur, Róbert Breki, Bragi og Matta
Önnur röð: Eyrún, Andrea Sif, Þórey Sif og Denni
Þriðja röð: Bylgja Dögg, Sigfús Örn með Rakel Talíu, Telma Björt og Svavar
Fjórða röð: Sólborg Ingunn amma, Maggi og Valborg Halldóra
Efst: Hafsteinn húsbóndi

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 17:00:31 / totisif

gestablogg

ætlaði að skapa smá stemningu og fá systur til að blogga smá (fyrst að ég er svona löt) en hún er bara löt líka - enda á hún ekki neitt blogg.  held þessu samt opnu fyrir hana og henni er leyft og ljúft að bæta e-u við, komi andinn yfir.

annars má fólk leggja orð í belg ef það vill - ég hef um svo lítið að kvarta, ósköp leiðinleg eitthvað. 
sólin leikur bara ennþá við mann og ég held áfram að sækja sundlaugarnar stíft.  gerði eina gloríu þar um daginn með völu vinkonu - við fórum í salarlaug sem er ansi skemmtileg og ljúf...nema það að merkingarnar fyrir búningsklefana eru örlítið misvísandi.  þannig galopnaði ég inn á 5-6 karlmenn að klæða sig og ég bara dó í smá stund.  áttaði mig þó eftir sekúndubrot og við hlupum skríkjandi í burtu.  haha.  vil bara vara fólk við þessu þarna - þið skiljið kannski hvað ég á við.  restin af sundferðinni var samt hin besta og leiðin lá síðan í prinsessupartý með nokkrum hressum völufrænkum, getum bara sagt að það var mikið gaman um kvöldið og nóttina ;) alveg eins og um daginn á gay pride :)  var svo í þynnkugalsa allan sunnudaginn - það var ALLT fyndið, alveg satt.  ég skemmti mér konunglega, veit ekki alveg um mitt heimafólk sem mátti þola það.

verslunarmannahelgin var bara næs og skemmtileg í bústað á króksfjarðarnesi með elsu og fjölsk.  bar hæst sigling um breiðafjörð í glaðasólskini út í skáley og flatey og í kringum nokkrar eyjar.  ég set myndirnar inn fljótlega svo þið megið njóta þess aðeins líka.  takk fyrir helgina, elsa!

segi ekki meir - þið gestabloggið eða kvittið eða hvað sem þið viljið.  mest af öllu vil ég þó að þið farið út í sólina hvenær sem þið getið og brosið - það er best :)

ciao, Þórey

ps. OMG hvað það var gaman að leiknum áðan!!  maður er bara orðinn mjög spenntur...

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 13:27:27 / totisif

gestablogg: Telma

gjörið þið svo vel!

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 16:44:30 / totisif

Vestrið

Á maður ekki að blogga smá yfir kaffinu og kleinunum í vinnunni??  Er sem sagt að dagskrárfulltrúast hér á Stöð 2 hjá gamla vinnuveitandanum 365 og hef það bara voða gott hér.  Vinnan er reyndar staðsett á Krókhálsi sem er staðsetning aðeins lengra frá því sem ég á að venjast, en það venst.  Þar sem ég bý í eyjabakkanum núna get ég hjólað hingað á stuttum 20 mínútum og það er yndislegt að fara í gegnum dalinn á svona góðum dögum.

Sumarið er búið að vera æðislegt - besta íslenska sumar sem ég hef upplifað í langan tíma, en ég var auðvitað lengst í burtu í fyrra.  Fór svo vestur um daginn á Dýrafjarðardaga en ég hafði ekki komið á Þingeyri í 11 ár svo þetta var afar sáluhjálpandi og stórkostlegt.  Fjölskyldan fjölmennti á Grundarhóli (gamla Hól sem var æskuheimilið) hjá Möttu frænku og var í góðu yfirlæti á alls konar skemmtunum sem hátíðin bauð upp á.  Ég heimsótti Gísla Súrsson í Haukadal og fékk hjá honum rabbabaragraut með rjóma, fékk fleiri gómsætar súpur í görðum Þingeyringa, fór í sund, göngutúra, sá Act Alone sýningu, fór í grillveislu að hætti víkinga og á stórdansleik í samkomuhúsinu.  Je minn eini, hvað það var gaman! :)  Svo var ægilega gott veður alla leiðina heim með djúpinu.  Ég mæli með þessari hátíð og það má alveg örugglega finna mig þar næstu ár.

Þetta var svo fín helgi að ég er hætt við að fara á þjóðhátíð - get ekki ímyndað mér að hún standist samanburð eða skemmtanastuðulinn - tími því heldur ekki í ár.  En þá er áramótaheitið komið í ár - mátti ekki seinna vera.  Er ótrúlega ánægð með þetta :)

Góðar stundir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 23:40:47 / totisif

Dagný Sól

http://farm4.static.flickr.com/3194/2634458589_6f2ede1c26.jpg

Sólin mín var skírð á sunnudaginn síðastliðinn; fallegur dagur, falleg athöfn, fallegt fólk og fallegur matur. 
Gracias a la vida, que me ha dado tanto...

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 13:48:48 / totisif

telma

http://farm4.static.flickr.com/3135/2587346148_821382ab79.jpg?v=0

mér finnst eiga vel við að óska yndislegu systur minni til hamingju með íþróttafræðigráðuna sína á þessum fallega þjóðhátíðardegi, um leið og ég óska öllum íslendingum til hamingju með hann.  útskriftin átti sér reyndar stað á laugardaginn 14. júní og var dagurinn ánægjulegur í alla staði.  Telma var falleg og skemmti sér vel, veisla var haldin heima á háaleitisbraut þar sem okkar fjölskylda og tengdafjölskylda frökenarinnar, þ.e. ættbálkur Svavars, skemmtu sér vel og lengi.  við systkinin enduðum síðan saman á nasa á ný danskri í stemningu, geri aðrir betur.

Hér má sjá dömuna í útskriftargírnum :)
Eigið góðan og blessaðan daginn.

http://farm4.static.flickr.com/3013/2586508037_862c6e1f75_m.jpghttp://farm4.static.flickr.com/3006/2586510597_a260aa84ba_m.jpg

http://farm4.static.flickr.com/3183/2586551047_c60d22efa5.jpg

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 10:58:05 / totisif

gestur

http://farm3.static.flickr.com/2136/2196212966_12e6ac7355.jpg?v=0

Litli sæti bróðir minn sem varð twentyone um daginn...veit ekki hvar þetta endar með hann...hann fer að verða eldri en ég!  Þarna er hann á útskriftardaginn sinn fyrir réttu ári, tilbúinn að fara og sigra heiminn næst.  það er hann nú næstum búinn að gera með því að kynna sér betur danska menningu og svo almennri vinnumenningu íslendinga í bankanum.  Hann ætlar sér þó að setjast aftur á skólabekk með haustinu.  Svo er hann hörkuduglegur í spilamennskunni; í dag er hann á sauðárkróki að spila á meðan Sara hans útskrifast...hann rétt nær í skottið á veislunni hennar. 

jæja, þessi færsla er tileinkuð þeim skötuhjúum á þessum góða degi - til hamingju Sara, með stúdentshúfuna og til hamingju Gestur, með frúna og lífið :)

http://farm3.static.flickr.com/2130/2195427505_2a2869fc3b.jpg?v=0 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010
Myndir